
Framkvæmdastjóri
Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra. Leitað er að kraftmiklum leiðtoga sem býr yfir þeim eldmóði sem þarf til að leiða skrifstofu Kennarasambands Íslands áfram inn í framtíðina. Viðkomandi þarf að búa yfir metnaði til að styðja við starfsemi og markmið KÍ og hafa þekkingu og farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun skrifstofu KÍ ásamt því að hafa umsjón með eignum sambandsins, fjármálum og rekstri þess samkvæmt lögum og samþykktum KÍ.
Ábyrgð á starfsemi sambandsins gagnvart stjórn KÍ.
Ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og starfsemi KÍ í samráði við stjórn.
Situr fundi stjórnar KÍ með málfrelsi og tillögurétt.
Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sem stjórn felur framkvæmdastjóra.
Stjórnar daglegum rekstri KÍ og starfsemi miðlægs þjónustusviðs KÍ.
Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar KÍ og frágangi ársreikninga.
Umsjón með bókhaldi KÍ, aðildarfélaga og sjóða.
Mannauðsstjórnun.
Samningagerð við utanaðkomandi aðila um þjónustu/viðskipti við KÍ.
Umsjón með viðhaldi skrifstofuhúsnæðis KÍ og innkaupum húsbúnaðar, tölvu- og símabúnaðar ásamt því að sinna samskiptum við þjónustuaðila.
Ýmis tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ eða formaður/varaformaður fela framkvæmdastjóra.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða æskileg.
Þekking og farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
Farsæl reynsla af stjórnun mannauðs.
Leiðtogahæfni og geta til að vinna í teymi sem og sjálfstætt.
Geta til að vinna undir álagi og takast á við breytingar á skilvirkan hátt.
Lipurð og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og metnaður.
Mjög góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Hæfni í Norðurlandamáli er kostur.

