

Framkvæmdastjóra UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis
Íþróttafélögin UMF Þór og Knattspyrnufélag Ægis í Ölfusi leita að öflugum, framsýnum og skipulögðum framkvæmdastjóra til að leiða daglegan rekstur félaganna og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í sveitarfélaginu. Starfið er fjölbreytt, lifandi og krefst bæði sjálfstæðis og góðrar hæfni í samskiptum. Um er að ræða 80% starf og ráðningatími til reynslu út árið 2026. Umsóknarfrestur til 24.maí 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og yfirumsjón með starfsemi félaganna.
- Virk samskipti við formenn, stjórnir, þjálfara og foreldra.
- Eftirlit með starfsemi aðildarfélaga og faglegur stuðningur við mótshald og aðra viðburði.
- Umsjón með kynningamálum og upplýsingaflæði.
- Samskipti við sérsambönd og landssamtök (KKÍ,KSÍ,HSK,UMFÍ,ÍSÍ o.fl.) og þingboð.
- Styrkjaleit og aðstoð við umsóknir í styrktarsjóði, bæði innlenda og erlenda.
- Yfirumsjón með greiðslu- og skráningarkerfum (t.d. Abler).
- Fræðsla og stuðningur við sjálfboðaliða og þjálfara.
- Markaðssetning, kynning og efling ímyndar íþróttanna í Ölfusi.
- Eftirfylgni með jafnréttisstefnu deilda og stuðningur við fyrirmyndarfélagaferli ÍSÍ.
Önnur tilfallandi verkefni sem stjórnir félaganna fela framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði íþrótta, stjórnunar eða skyldum greinum er æskileg.
- Reynsla af rekstri íþrótta- eða félagasamtaka er mikilvæg; reynsla af viðburðastjórnun er kostur.
- Góð tölvukunnátta
- Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæð þjónustulund og hæfni til að leiða verkefni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt.
Önnur reynsla sem nýtist í starfi er metin til tekna.
Auglýsing birt2. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarberg 41, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniAlmannatengsl (PR)ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiInnleiðing ferlaLeiðtogahæfniMannleg samskiptiMarkaðssetning á netinuMetnaðurSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiVerkefnastjórnunViðburðastjórnunÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Framkvæmdastjóri Innanlandssviðs – Eimskip
Eimskip

Viðskiptastjóri SaaS lausna
Viridi ehf.

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Orkuveitan

Framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

Framkvæmdastjóri
Álkerfi

Framkvæmdastjóri Hattar
Íþróttafélagið Höttur

Framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM
OBHM

Framkvæmdastjóri LungA-skólans á Seyðisfirði
LungA-skólinn ses