VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Forvarnaráðgjafi

VIRK leitar að metnaðarfullum einstaklingum í störf ráðgjafa á forvarnasviði. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi störf sem bjóða upp á mikla möguleika á að móta störfin.

Helstu verkefni eru fræðsla til vinnustaða og ráðgjöf til einstaklinga sem eru á vinnumarkaði en eiga í erfiðleikum með að sinna vinnu sinni vegna heilsufarsástæðna. Einnig þróun og vinnsla forvarnaefnis meðal annars á endurbætta forvarnasíðu Velvirk.is

Um er að ræða krefjandi en jafnframt gefandi störf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði forvarna. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu og þekkingu á einstaklingsráðgjöf og atvinnulífi. Um fullt starf er að ræða. Skilyrði er heilbrigðismenntun og starfsleyfi frá landlækni auk góðrar kunnátta í íslensku. Starfsstöð er í Reykjavík.

Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fræðsla og stuðningur við fyrirtæki og stofnanir á sviði forvarna
  • Ráðgjöf, hvatning og stuðningur við einstaklinga í forvarnarskyni

  • Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK

  • Þróun og gerð fræðsluefnis meðal annars inn á vefinn Velvirk.is

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda og starfsleyfi frá landlækni, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar

Reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar

Kunnátta og reynsla af störfum á vettvangi forvarna og lýðheilsu

Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund

Sveigjanleiki, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni

Góð þekking á vinnumarkaði

Hreint sakavottorð

Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Auglýsing birt19. ágúst 2025
Umsóknarfrestur31. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar