Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Forstöðumaður viðskiptaborðs

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns viðskiptaborðs á sviði markaðsviðskipta.

Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.

Deild viðskiptaborðs er ein af fjórum deildum markaðsviðskipta og hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir og sinnir vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða. Enn fremur annast deildin greiningar þvert á fjármálamarkaði, en með áherslu á hvorutveggja innlendan og erlenda skuldabréfa- og gjaldeyrismarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á verkefnum deildar, uppbyggingu og faglegri þróun.
  • Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.
  • Fagleg ábyrgð á markaðsaðgerðum Seðlabankans, stýringu gjaldeyrisforða og framkvæmd gjaldeyris- og verðbréfaviðskipta.
  • Ábyrgð á vöktun og greiningu fjármálamarkaða, lausafjárstýringu og upplýsingagjöf til stjórnenda og nefnda bankans.
  • Tekur þátt í stefnumótun og þróun framtíðarsýnar sviðsins
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á vegum Seðlabankans
  • Skrif í rit Seðlabankans ásamt öðrum skrifum og gerð kynningarefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi s.s. á sviði hagfræði, fjármála, verkfræði eða sambærilegu.
  • Viðurkennd alþjóðleg sérfræðimenntun á sviði fjármála og eignastýringar er kostur.
  • Sterkir leiðtogahæfileikar.
  • Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum æskileg.
  • Góð þekking á fjármálamörkuðum, einkum peninga-, gjaldeyris- og skuldabréfamörkuðum.
  • Viðeigandi starfsreynsla af markaðsviðskiptum, markaðsaðgerðum, fjárstýringu, eignastýringu eða sambærilegum verkefnum.
  • Góður skilningur á framkvæmd peningastefnu, lausafjárstýringu og hlutverki seðlabanka á fjármálamörkuðum.
  • Gild verðbréfaréttindi.
  • Góð greiningarfærni ásamt hæfni til að setja fram og kynna niðurstöður.
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
  • Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EignastýringPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HagfræðingurPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkfræðingurPathCreated with Sketch.Verðbréfaréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar