

Flugvirki á Wheels & Brakes Shop í Keflavík
Icelandair er líflegur vinnustaður með starfstöðvar á Íslandi, Evrópu og Norður-Ameríku. Við erum einn stærsti og fjölbreyttasti vinnustaður landsins en starfsumhverfið er bæði alþjóðlegt og síbreytilegt. Við fljúgum til fjölda stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada, og til áfangastaða innanlands og á Grænlandi.
Viðhaldsdeild Icelandair ber ábyrgð á að öll viðhaldverkefni séu framkvæmd samkvæmt gæðahandbók MOE og í samræmi við EASA Part 145 reglugerð. Í viðhaldsdeildinni starfar öflugur hópur sem tekst á við krefjandi og flókin viðhaldsverkefni.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi í starf flugvirkja í Wheels & Brakes teymið okkar í viðhaldsskýlinu í Keflavík. Viðkomandi kemur til með að sinna almennu íhluta viðhaldi í samstarfi við aðra í teyminu.
Starfsfólk Wheels & Breakes ber ábyrgð á viðhaldi á dekkjum og bremsum fyrir flugvélar Icelandair. Hjá Wheels & Brakes starfar öflugur hópur einstaklinga sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu.
Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsókn ásamt ferilskrá óskast eigi síðar en 1.maí 2026.
- Almenn viðhaldsvinna á dekkjum og bremsum
- Önnur tilfallandi verkefni
- Próf í flugvirkjun, sveinspróf kostur
- Part 66 skírteini kostur
- Öryggisvitund
- Samskiptahæfileikar og geta til að vinna í hóp
- Jákvætt hugafar
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Almenn tölvukunnátta
Íslenska
Enska