Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Flugvallarstarfsmaður á Bíldudalsflugvelli

Isavia Innanlandsflugvellir óska eftir að ráða einstakling til starfa við flugvallarþjónustu á flugvellinum á Bíldudal. Starfið er í senn mjög fjölbreytt og krefjandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um daglegt eftirlit, rekstur og viðhald flugvallarmannvirkja og búnaðar 

  • Tryggja örugga og hnökralausa starfsemi flugvallarins í samræmi við verklag og reglur 

  • Annast snjóruðning og hálkuvarnir til að tryggja öruggar aðstæður fyrir flugumferð allt árið um kring 

  • Halda uppi samskiptum við flugumferð í gegnum flugradíó (AFIS) 

  • Sinna björgunar- og slökkviþjónustu flugvallarins 

  • Bregðast við atvikum og tryggja viðeigandi viðbrögð við ófyrirséðum aðstæðum 

  • Taka þátt í þjálfun og viðhaldi á hæfni sem snýr að öryggi og rekstri 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur  

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur  

  • Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur  

  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg  

  • Gott vald á íslensku og ensku  

Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur5. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bíldudalsflugvöllur, 465 Bíldudalur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar