

Flísalagningamaður (framtíðarstarf)
Um starfið:
Baðverk leitar að vandvirkum og áreiðanlegum flísalagningamanni til starfa. Um er að ræða fjölbreytt verkefni við flísalagnir, aðallega í baðherbergjum og öðrum votrýmum, bæði í nýbyggingum og endurbótum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðum frágangi, vinnur sjálfstætt og leggur áherslu á gæði og fagmennsku. Reynsla af flísalögnum er mikilvæg og reynslu af undirvinnu og frágangi votrýma.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Flísalagnir á gólfum og veggjum
Undirbúningur yfirborðs fyrir flísalögn
Mælingar, uppsetning og niðurskurður flísa
Fúgun og annar lokafrágangur
Vinna við baðherbergi og önnur votrými
Að tryggja vandaðan og snyrtilegan frágang
Samvinna með öðrum iðnaðarmönnum á verkstað
Við leitum að þér sem:
Hefur reynslu af flísalögnum
Ert vandvirkur, stundvís og áreiðanlegur
Getur unnið bæði sjálfstætt og með öðrum
Hefur gott auga fyrir smáatriðum og frágangi
Sýnir ábyrgð og metnað í starfi
Hefur bílpróf – nauðsynlegt
Við bjóðum:
Fjölbreytt og góð verkefni, gott starfsumhverfi og tækifæri til að starfa með öflugu teymi. Laun og starfskjör eru samkomulagsatriði og taka mið af reynslu og hæfni.
nánari upplýsingar
gegnum [email protected]
Íslenska
Enska



