Samskip
Samskip
Samskip

Fjölbreytt sumarstörf á hafnarsvæði

Við óskum eftir að ráða öflugt sumarstarfsfólk á hafnarsvæði okkar við Kjalarvog.

Á hafnarsvæði eru mjög fjölbreytt verkefni, þau helstu eru losun og lestun skipa, afgreiðsla gámabíla inn og út af svæði, vinna við hitastýrða gáma og fleira. Helstu verkefnin í frystigeymslu eru móttaka og afhending á frosnum afurðum. Á bílavelli eru helstu verkefnin móttaka á nýjum og notuðum bílum, sem og önnur afgreiðsla á stærri vörum.

Helstu verkefni

  • Losun og lestun skipa
  • Móttaka og afgreiðsla pantana í frystigeymslu
  • Losun bíla úr gámum, sjónskoðun og umsýsla bíla
  • Afgreiðsla gámabíla
  • Ýmis önnur verkefni

Hæfnikröfur og reynsla
Sumarstarfsfólk Samskipa þurfa að uppfylla neðangreindar hæfnikröfur:

  • Aldur 18+
  • Rík þjónustulund og sterk öryggisvitund
  • Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
  • Góð samskiptahæfni og eiga gott með að vinna í hóp
  • Bílpróf er ekki skilyrði fyrir öllum störfum á hafnarsvæði, en mikill kostur
  • Vinnuvélaréttindi J eða K er kostur
  • Námskeið fyrir umsækjendur sem eru ekki með J eða K réttindi gæti verið möguleiki

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um. Mikilvægt er að sumarstarfsfólk geti unnið samfellt í 10 vikur á tímabilinu maí - ágúst.

Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars n.k.

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar