Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar

Fiðlukennari (afleysingastaða skólaárið 2026-2027)

Listaskóli Mosfellsbæjar skiptist í tónlistardeild sem er stærsta deildin innan skólans, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Leikfélag Mosfellssveitar og Myndlistarskóla Mosfellsbæjar. Þessir aðilar vinna saman að öflugri listkennslu í sveitarfélaginu, svo og öflugu lista- og menningarstarfi.

Aðal starfsstöð tónlistardeildar er í húsnæði Listaskólans á 3. og 4. hæð að Bjarkarholti 2, en skólinn starfar einnig í mjög góðu samstarfi í öllum grunnskólum bæjarins. Leitum við eftir fiðlukennara í árs afleysingarstöðu sem myndi starfa í Bjarkarholti og 1-2 grunnskólum. Um 40-50% starfshlutfall er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf fiðluleik og/eða fiðlukennslu, ásamt kennslureynslu á hljóðfærið.
Góð færni í samvinnu og samskiptum
Faglegur metnaður og áhugi á sköpun, starfsþróun og fjölbreytni í skólastarfi.
Góð íslenskukunnátta

Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bjarkarholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar