
Memories by Valberg ehf.
Memories by Valberg er íslensk lúxusferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í persónulegum, einstökum og vönduðum ferðaupplifunum á Íslandi.
Við trúum því að bestu ferðirnar snúist ekki aðeins um það sem þú sérð – heldur um tilfinninguna, augnablikin og minningarnar sem verða til á leiðinni.
Við hönnum sérsniðnar ferðir fyrir ferðalanga sem vilja upplifa Ísland á sínum eigin forsendum, með áherslu á gæði, næði, persónulega þjónustu og einstaka upplifun.
Hvort sem um er að ræða einkareisur, lúxusgistingar, náttúruupplifanir, matargerð, menningu eða falin leyndarmál landsins, leggjum við áherslu á að hvert smáatriði sé vandlega útfært.

Ferðaráðgjafi
Memories by Valberg leitar að metnaðarfullum og þjónustulunduðum ferðaráðgjafa sem hefur ástríðu fyrir Íslandi, lúxusferðum og einstökum upplifunum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni:
• Ráðgjöf og skipulagning ferða og upplifana
• Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
• Að sérsníða ferðir að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar
• Að skapa persónulega og framúrskarandi þjónustu frá upphafi til enda
• Að fylgjast með nýjungum og tækifærum í ferðaþjónustu á Íslandi
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur brennandi áhuga á Íslandi, ferðalögum og upplifunum
- Er skipulagður, jákvæður og lausnamiðaður
- Hefur góða samskiptahæfni og þjónustulund
- Getur unnið sjálfstætt en einnig vel í teymi
- Hefur gott vald á íslensku og ensku – fleiri tungumál eru kostur
- Hefur auga fyrir smáatriðum og metnað fyrir því að skapa „Memories“ sem fólk gleymir ekki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Getur unnið að heiman
- Þarf að geta hafið störf sem fyrst
Fríðindi í starfi
Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaHeiðarleikiMannleg samskiptiMetnaðurSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSveigjanleikiVinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





