
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings er fagleg og samþætt skóla- og velferðarþjónusta með farsæld barna og fjölskyldna að leiðarljósi. Meginstarfsstöð þjónustunnar er í Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og geta starfsmenn valið starfsstöð á starfssvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni. Á starfssvæðinu eru um 4500 íbúar, þar af um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri sem sækja nám í 6 leikskólum og 6 grunnskólum.
Sveitarfélögin sem standa að Skóla- og velferðarþjónustunni eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur og hafa þau flest hlotið viðurkenningu BSRB sem framúrskarandi vinnustaðir.
Félagsráðgjafi í barnavernd/félagsþjónustu
Skóla-og velferðarþjónusta Árnesþings óskar eftir að ráða metnaðarfullan félagsráðgjafa í barnavernd/félagsþjónustu innan velferðarþjónustu í 80 – 100% stöðu. Unnið er í dagvinnu en æskilegt að viðkomandi geti tekið bakvaktir.
Félagsráðgjafi í barnavernd starfar að verkefnum sem krefjast sérfræðiþekkingar í vinnslu og meðferð barnaverndarmála. Starfið krefst víðtækrar þekkingar á sviði barnaverndar- og stjórnsýslulaga og úrræðum, bæði ríkis og sveitarfélaga. Auk barnaverndarmála getur verið um að ræða félagslega ráðgjöf við einstaklinga og málstjórn í farsæld barna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og skráning tilkynninga og könnun/úttekt á aðstæðum barna
- Vinna með fjölskyldum; viðtöl, ráðgjöf og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Skipulagning úrræða og aðgerða í samvinnu við samstarfsaðila
- Vinnsla við fóstur- og vistunarmál
- Markvisst samstarf við aðrar stofnanir og samþætting verkefna
- Mat á hæfni fóstur- og stuðningsforeldra
- Handleiðsla fyrir fósturforeldra, persónulega ráðgjafa og annað starfsfólk sem ráðið er af sviðinu vegna starfa innan barnaverndar
- Félagsleg ráðgjöf til einstaklinga
- Málastjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf, eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi í barnaverndarþjónustu
- Þekking og reynsla af barnavernd/velferðarþjónustu er mikilvæg
- Reynsla af starfi með börnum og fjölskyldum er kostur
- Góð færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Geta til að vinna undir álagi í krefjandi starfsumhverfi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tungumála- og tölvukunnátta
Auglýsing birt25. nóvember 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Launrétt 4, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi
Landspítali

Ráðgjafi barna og fjölskyldna
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sálfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi
Landspítali

Félagsráðgjafi eða ráðgjafi í félagsþjónustu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð

Sálfræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd
Heilsuvernd

Sérfræðingur með sértæka ábyrgð á frístundaheimilinu Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Frístundaþjónusta í Árborg

Yfirþjálfari Rafíþróttadeild Keflavíkur
Rafíþróttadeild Keflavíkur

Framkvæmdastýra Aflsins
Aflið

Félagsráðgjafi
Hringsjá endurhæfing