Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Miðbæ – tímabundið starf í eitt ár

Laust er til umsóknar 80-100% tímabundið starf félagsráðgjafa við Heilsugæsluna Miðbæ í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi.

Um ábyrgðarmikið og krefjandi starf er að ræða og spennandi vettvang fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Stöðug þróunarvinna er í gangi með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunnar.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu 
  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum 
  • Einstaklingsbundin viðtöl og ráðgjöf sem lítur að framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum 
  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga 
  • Sértæk ráðgjöf vegna þroskavandamála og annarra atferlisvandamála 
  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi skilyrði
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vesturgata 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar