
N1
Við erum til staðar fyrir fólk og fyrirtæki um allt land þegar þarf að stoppa, fylla á, hlaða, grípa nauðsynjar, fá sér bita eða redda bílnum. Á stöðvunum okkar mætast eldsneyti og raforka, rekstrarvörur, veitingar og ýmis praktísk þjónusta sem nýtist í dagsins amstri.
Við leggjum áherslu á að hafa hlutina einfalda. Gott aðgengi, skýr þjónusta og vöruúrval sem mætir ólíkum þörfum, hvort sem þú ert á langferð, á leið í vinnu eða með rekstur. Með N1 kortinu safnarðu punktum sem nýtast sem krónur í verslunum okkar um land allt.
Vel staðsett stöðvanet, öflug bílaþjónusta, til dæmis dekkja- og smurþjónusta, og traust fyrirtækjaþjónusta gera okkur að sterkri heild og föstum hluta af daglegu lífi á Íslandi.

Ert þú nýi stöðvarstjórinn?
Við leitum að drífandi og þjónustulunduðum stöðvarstjóra
á þjónustustöð okkar á Sauðárkróki. Starfið er tilvalið fyrir
kraftmikinn leiðtoga sem býr yfir hæfni til að stýra frábærum
hópi fólks, halda utan um verkefnin og hafa góða yfirsýn..
Helstu verkefni:
- Umsjón með daglegum rekstri stöðvarinnar
- Verkstjórn og skipulag verkefna
- Að tryggja góða þjónustu og samstillt vinnubrögð
Hæfniskröfur:
- Gott vald á íslensku og ensku
- Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi
- Góð skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og framúrskarandi samskiptahæfni
- Færni til að byggja upp öflugt teymi og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi
Fríðindi í starfi
Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
Nánari upplýsingar veitir Jón Viðar Stefánsson, forstöðumaður einstaklingssviðs, í tölvupósti á netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026. Sæktu um á n1.is og láttu ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni
Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur25. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ártorg 4
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


