

Ert þú næsti yfirvélstjóri á olíuskipinu Keili?
Olíudreifing leitar að metnaðarfullum yfirvélstjóra til starfa á Olíuskipið Keili. Við sækjumst eftir starfsfólki sem hefur metnað og vill vinna í öflugu teymi starfsfólks okkar.
Um starfið
Helstu verkefni Keilis er olíuafgreiðsla til skipa á Faxaflóasvæðinu og birgðaflutningar frá Reykjavík.
Almennt gildir að siglt er í tvær vikur og frí í tvær vikur.
Hæfniskröfur:
- Vélstjóraréttindi 750 kW
- Slysavarnarskóli sjómanna
- Þjónustulund og jákvæðni
- Góðir samskiptahæfileikar
- Rík öryggisvitund
Við bjóðum þér:
- Spennandi verkefni
- Íþróttastyrk
- Gleraugnastyrk
- Virkt starfsmannafélag
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Auðunn Birgisson, deildarstjóri birgðarstýringar, ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
Íslenska










