
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar
Samkvæmt lögum um brunavarnir nr. 75/2000 er Akraneskaupstað skylt að sjá um rekstur slökkviliðs. Búnaður slökkviliðsins skal taka mið af þeim áhættum sem fyrirfinnast í sveitarfélaginu hverju sinni.
Markmið slökkviliðsins er eftirfarandi, að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi. Eldvarnareftirlit er því mikilvægur þáttur í starfsemi slökkviliðsins, sem meðal annars felur í sér fræðslu til almennings, fyrirtækja og stofnanna í sveitarfélaginu.
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar er skipað 30 liðsmönnum. Starfssvæði slökkviliðsins nær frá minni Borgarfjarðarbrúar og að botni Hvalfjarðar. Slökkviliðið hefur aðsetur á Kalmansvöllum 2. Tveir starfmenn eru í fullu starfi hjá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar.

Eldvarnareftirlitsmaður með áherslu á fræðslu og forvarnir
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan einstakling í fullt starf eldvarnareftirlitsmanns með áherslu á fræðslu- og forvarnarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem lögð er áhersla á að efla eldvarnir, auka öryggisvitund almennings og stuðla að fækkun slysa og bruna. Starfið snýst bæði um eftirlit, ráðgjöf og jákvæða forvörn og hentar einstaklingi sem hefur áhuga á öryggismálum, fræðslu og samskiptum við fjölbreytta hópa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæmd eldvarnaeftirlits samkvæmt lögum og reglugerðum.
- Ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga um eldvarnir og öryggismál.
- Gerð skýrslna og eftirfylgni vegna athugasemda í eldvarnaeftirliti.
- Undirbúningur og framkvæmd fræðslu um eldvarnir og brunavarnir fyrir skóla, fyrirtæki og almenning.
- Skipulagning og framkvæmd forvarnarverkefna og kynninga.
- Þátttaka í þróun og kynningu á forvarnarstarfi slökkviliðsins.
- Samstarf við starfsfólk slökkviliðsins, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, svo sem á sviði eldvarna, byggingarmála, öryggismála eða skyldra greina, er kostur.
- Réttindi eða reynsla á sviði eldvarnaeftirlits er kostur.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og framkomu.
- Hæfni til að halda fræðslu og koma upplýsingum skýrt á framfæri.
- Hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópum, þar á meðal börnum og ungmennum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Almenn tölvukunnátta.
- Gild ökuréttindi.
Við leitum að einstaklingi sem
- ber ríka ábyrgðartilfinningu og hefur áhuga á öryggismálum,
- hefur frumkvæði og metnað til að þróa fræðslu- og forvarnarstarf,
- á auðvelt með að vinna með fólki á öllum aldri,
- getur unnið sjálfstætt sem og í teymi.
Við bjóðum
- áhugavert og krefjandi starf í mikilvægu samfélagslegu hlutverki,
- fjölbreytt verkefni og tækifæri til þróunar í starfi,
- gott starfsumhverfi og öflugt samstarf innan slökkviliðsins,
- laun samkvæmt gildandi kjarasamningum.
Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kalmannsvellir 2
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar