

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar 80% starf doktorsnema við rannsóknarverkefni sem nýlega hlaut doktorsnemastyrk úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Rannsóknarverkefnið ber heitið Drengjaorðræða og kynjuð samskipti á vettvangi skóla (Gendered Interactions in Compulsory School Settings) og beinir sjónum að drengjaorðræðu sem greina mátti í íslenskri skólamálaumræðu í kjölfar PISA könnunarinnar 2022. Í verkefninu skoðum við hvernig drengjaorðræðan birtist í opinberri umræðu um menntamál og hvernig sú umræða hefur áhrif á kennslurými og skólastefnumótun á þremur ólíkum skólastigum.
Rannsóknarverkefnið er unnið af teymi rannsakenda við Háskóla Íslands og fær doktorsnemi styrk til þriggja ára til að starfa sem hluti af teyminu. Vinna doktorsnema við rannsóknina og greinaskrif í tengslum við hana verður uppistaða doktorsverkefnis hans. Doktorsneminn mun vinna undir leiðsögn dr. Írisar Ellenberger prófessors og dr. Katrínar Ólafsdóttur lektors sem báðar starfa á Menntavísindasviði HÍ, og í samstarfi við aðra aðila í rannsóknarteyminu.
-
Undirbúningur rannsóknarverkefnis.
-
Gagnasöfnun með áhorfi á vettvangi, viðtölum við kennara og skólastjórnendur ásamt rýnihópum með nemendum.
-
Greining gagna og ritun doktorsverkefnis, þar með talið 3-4 fræðigreina, um hluta af niðurstöðum rannsóknarinnar undir handleiðslu leiðbeinanda.
-
Að auka við og útfæra rannsóknina sem er að hluta til mótuð af teyminu sem stýrir rannsóknarverkefninu.
-
Meistaragráða á sviði mennta-, félags- eða hugvísinda. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
-
Þekking á kynjafræði og/eða hinsegin fræðum.
-
Þekking á eigindlegum rannsóknaraðferðum.
-
Þekking á menntun og menntunarfræðum er kostur.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
-
Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.
-
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af doktorsnámsnefnd sviðsins.
Íslenska
Enska