
Digranes- og Hjallakirkja óska eftir öflugum starfsmanni í hlutastarf
Digranes- og Hjallakirkja leita að hlýjum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur ánægju af matargerð, gleði af samskiptum við fólk og áhuga á að taka þátt í lifandi safnaðarstarfi. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem umhyggja, gestrisni og góð nærvera skipta miklu máli. Ef þú sérð þig í þessu hlutverki hvetjum við þig til að hafa samband við okkur.
Um er að ræða um 50% starf. Vinnutími er að jafnaði þrír dagar í viku, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, kl. 9:00–15:00 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfið fer fram í Digraneskirkju á þriðjudögum og fimmtudögum og í Hjallakirkju á miðvikudögum.
Jafnframt er töluverður möguleiki á aukavinnu vegna fjölbreyttra viðburða og veisluhalda sem fara fram á vegum kirkjanna, eftir þörfum og samkomulagi.
• Dagleg umsjón með eldhúsi og safnaðarsal.
• Undirbúningur og framreiðsla léttra veitinga fyrir viðburði og samverustundir.
• Viðvera og þjónusta í safnaðarstarfi.
• Móttaka og umönnun gesta kirkjunnar.
• Létt þrif og frágangur í safnaðarsal og eldhúsi.
• Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við sóknarprest og kirkjuhaldara.
• Reynsla af störfum í eldhúsi, veitingaþjónustu eða sambærilegum verkefnum er kostur.
• Þjónustulund, snyrtimennska og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
• Sveigjanleiki og jákvætt viðmót.
• Áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar.
Íslenska










