Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Deildarstjóri rannsókn

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa lífeindafræðing í stöðu deildarstjóra rannsóknar. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Mikil uppbygging er á HSS og innleiðing á stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Deildarstjóri ber faglega-, fjárhagslega- og mannauðsábyrgð á rannsóknarstofu HSS. Um er að ræða vaktavinnu

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfar í samræmi við ábyrgðarsvið stjórnenda á HSS

  • Ber faglega ábyrgð á þjónustu, skipulagi og þróun deildar

  • Ber ábyrgð á mannauðsmálum deildar

  • Stuðlar að öflugri samvinnu innan og utan deildarinnar

  • Ber ábyrgð á að rekstrarkostnaður deildarinnar sé innan heimilda

  • Sinnir fræðslu til nemenda og samstarfsfólks

  • Ábyrgur að byggja upp öryggismenningu á deildinni

  • Skipuleggur og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan stofnunar

  • Almenn störf lífeindafræðing

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem lífeindafræðingur

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Stjórnunarreynsla er æskileg

  • Víðtæk starfsreynsla sem lífeindafræðingur

  • Reynsla og þekking af gæðastarfi er kostur

  • Reynsla og þekking á helstu rannsóknarstofukerfum

  • Samskiptahæfni

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Þekking á mannauðsmálum er kostur

  • Þekking á rafrænum mannauðskerfum er æskileg

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skólavegur 6, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar