

Deildarstjóri innkaupa og birgða
Eitt umfangsmesta fjárfestingatímabil í sögu Rarik er fram undan. Uppbygging og styrking dreifikerfisins kallar á fagleg innkaup, traustar birgðakeðjur og markvissa stýringu birgða.
Við leitum að öflugum aðila til að gegna lykilhlutverki í stjórnendateymi fjármálasviðs. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála og felur í sér heildarábyrgð á stjórnun, stefnumótun og þróun innkaupa- og birgðastarfsemi Rarik.
Deildarstjóri leiðir og eflir teymi innkaupa og birgða og ber ábyrgð á að móta skýra stefnu um innkaup og birgðastýringu. Í starfinu felst umsjón með útboðum, samningum og samskiptum við birgja, auk ábyrgðar á hagkvæmum innkaupum og öruggu aðgengi að mikilvægum aðföngum.
Mikilvægur hluti starfsins er að bæta birgðastýringu og rekstur vöruhúsa og tryggja góða yfirsýn yfir fjármagn sem bundið er í birgðum. Rétta manneskjan í starfið getur haft mikil áhrif á þróun starfseminnar, meðal annars með því að leiða umbætur, stuðla að stafrænni þróun og auka nýtingu gagna við ákvarðanatöku.
Starfið felur jafnframt í sér náið samstarf við stjórnendur, verkefnastjóra og starfsfólk á starfsstöðvum Rarik um allt land.
Við leitum að reynslumiklum og metnaðarfullum leiðtoga sem á auðvelt með að vinna með fólki og hefur góða samninga- og greiningarhæfni. Viðeigandi háskólamenntun er æskileg og gerð er krafa um reynslu af innkaupum, birgðastýringu, samningagerð eða sambærilegum verkefnum.
Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði og sterk leiðtogahæfni nauðsynleg. Reynsla af umbótastarfi og stafrænni þróun er kostur, sem og þekking á regluverki innkaupa á sviði veitustarfsemi.
Starfið er í mikilli mótun og því kjörið tækifæri fyrir orkumikinn leiðtoga sem vill taka ábyrgð, leiða breytingar og byggja upp innkaupa- og birgðastarfsemi Rarik til framtíðar.
Íslenska
Enska