

Deildarstjóri eldri deildar
Stekkjaskóli á Selfossi óskar eftir deildarstjóra eldri deildar í 100% starfshlutfall. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér stjórnunarlega ábyrgð, þátttöku í stjórnunarteymi og að vera faglegur leiðtogi. Deildarstjóri eldri deildar mun sinna deildarstjórn í 6.-8. árgangi næsta skólaár en þegar fram í sækir í 6. - 10. árgangi.
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 380 nemendum í 1.-8. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Haustið 2025 hefst kennsla í 8. bekk skólans. Deildarstjóri eldri deildar mun leiða vinnu við að byggja upp unglingastigið í samstarfi við kennara og aðra stjórnendur. Mikilvægt er að hafa brennandi áhuga á skólaþróun, í nýjum skóla sem er í uppbyggingu.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
· Tekur þátt í skipulagi innra starfs skólans með öðrum stjórnendum
· Framfylgir skólanámskrá, samræmingu námsefnis og námsmats í samráði við kennara
· Annast daglega stjórnun sinnar deildar og er faglegur ráðgjafi
· Undirbýr deildarfundi sinnar deildar, stjórnar þeim og heldur fundargerðir
· Ber ábyrgð á nemendateymum á sínu stigi
· Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda
· Er tengiliður í samþættri þjónustu í þágu farsældar barna
· Önnur verkefni sem yfirmaður felur
· Grunnskólakennararéttindi áskilin
· Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræði mikilvæg
· Kennsla á unglingastigi og/eða reynsla í stjórnun áskilin
· Forystu- og stjórnunarhæfileikar
· Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
· Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
· Áhugi á skólaþróun
· Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku












