Eldhúsið Okkar
Eldhúsið Okkar
Eldhúsið Okkar

Bílstjóri / Aðstoð í eldhúsi

Við leitum að ábyrgum og þjónustuliprum sendli.


Starfið er fjölbreytt og felst annars vegar í útkeyrslu matvæla til viðskiptavina, móttöku og skilum á kössum, vörusókn til birgja og frágangi. Hins vegar felur starfið í sér fasta viðveru í eldhúsi og virka þátttöku í daglegum verkefnum innan þess.

Viðkomandi þarf því að vera stundvís, úrræðagóður og tilbúinn að taka þátt bæði í akstri og daglegu flæði eldhússins.

ATH eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum Alfreð.



Helstu verkefni og ábyrgð

Útkeyrsla matvæla til fyrirtækja og viðskiptavina

Söfnun og skil á kössum og umbúðum frá viðskiptavinum

Sækja vörur og hráefni til birgja þegar við á

Umsjón með réttri meðhöndlun matvæla í flutningi

Gæta að hreinlæti, reglu og öryggi við akstur og afhendingu

Einföld skráning á sendingum og afhendingum (unnið er eftir birgðaskráningu í eSmiley)

Aðstoð í eldhúsi

Þátttaka í daglegum verkefnum eldhússins, svo sem frágangi, tiltekt og öðrum almennum eldhússtörfum

Menntunar- og hæfniskröfur

Gilt ökuskírteini (B)

Reynsla af akstri og/eða sendilstörfum er kostur

Góð tímastjórnun og áreiðanleiki

Geta til að vinna sjálfstætt

Grunnþekking á meðhöndlun matvæla er kostur

Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Flatahraun 5B, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar