
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu, þjónustu og útleigu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla frá Dollar og Thrifty. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 300 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 20 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls 10 verkstæði.

Bílaþrif- og bílaflutningar
Brimborg ehf óskar eftir að ráða starfskraft í bílaþrif og bílaflutninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þrífa bíla
- Flytja bíla
- Sinna gæðaeftirliti bíla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt bílpróf, jafnvíg(ur) á beinskiptan og sjálfskiptan bíl
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
- Snyrtimennska og stundvísi
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Grunnfærni í notkun upplýsingakerfa Windows
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt fríðindi skv. mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vinnu og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Auglýsing birt11. júlí 2025
Umsóknarfrestur31. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiStundvísiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar