
MAX1 | VÉLALAND
MAX1 I VÉLALAND veitir dekkja- og verkstæðisþjónustu fyrir flest allar tegundir bíla og býður upp á margvíslegar rafrænar lausnir við pantanir á þjónustu. MAX1 dregur nafn sitt af því markmiði okkar að klára hvern verkþátt á innan við klukkustund eftir að við hefjumst handa.
Áhersla er ávallt lögð á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum og eru öll verkstæði MAX1 I VÉLALAND aðilar að Bílgreinasambandinu.
Samstarfsaðilar okkar eru fjölmargir, dekkin koma frá finnska dekkjaframleiðandanum Nokian, smurolíurnar frá Olís, rafgeymarnir frá Exide, þurrkublöðin frá Trico og varahlutir koma ýmist beint að utan, frá bílaumboðum eða ýmsum birgjum innanlands.
Hjá MAX1 I VÉLALAND starfa vel þjálfaðir og reynslumiklir starfsmenn á starfsstöðvum sem geta veitt bílaþjónustu um allt höfuðborgarsvæðið.

Bifvélavirki eða starfsfólk með reynslu
Max1 óskar eftir þjónustulunduðum og vandvirkum einstaklingi til starfa í almennum bílaviðgerðum á starfsstöð sína að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Starfið hentar bæði faglærðum bifvélavirkjum og þeim sem hafa reynslu af viðgerðum á ökutækjum.
Við bjóðum uppá
- Góða vinnu- og búningaaðstöðu
- Góðan starfsanda, öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf.
Metnaðarfull stjórnun
- Fyrirmyndarfyrirtæki Creditinfo
- Fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi Nemastofu 2025
- Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024 og 2025
- Jafnalaunavottað fyrirtæki
- Brautryðjandi í styttingu vinnutímans
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á tækni og nýjungum, sem langar að starfa með sterku liði sérfræðinga þar sem miklir möguleikar eru á símenntun og starfsþróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar viðgerðir og viðhald ökutækja
- Smur- og dekkjaskipti
- Bremsuviðgerðir
- Dempara- og hjólaleguskipti
- Rafgeymaskipti og önnur algeng þjónusta
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun eða reynslu í bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
- Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Grunnfærni í notkun upplýsingakerfa, Windows
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Frí á afmælisdegi
Auglýsing birt28. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunFrumkvæðiÖkuréttindiStundvísiSveinsprófÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Dekkjaþjónusta í dekkjatörn
Max1 Bílavaktin

Maintenance Technician | Össur
Embla Medical | Össur

Óskum eftir Bifvélavirkja i fullt starf
Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf

Smiður
Félagsstofnun stúdenta

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Arctic Trucks leitar að starfsmanni á dekkjaverkstæðið. Þetta er framtíðarstarf.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Starf í viðhaldsdeild
Gæðabakstur

Stálsmiður/vélvirki/ málmsuða
Suðulist

Viðgerðarmaður (dælur og loftpressur)
RK.raf ehf.

Blikksmiður/Aðstoðarmaður Blikksmiðs
Blikksmiðjan Vík

Service Technician - Reykjavik
Tesla