
Súpufélagid ehf.
The Soup Company (Súpufélagið) is a family owned restaurant, located in the heart of Vík í Mýrdal, Iceland. We serve various sorts of delicious soups, paninis, and other exciting dishes and of course freshly baked bread and desserts. Soon we are also opening a bakery!

Bakari óskast í spennandi nýtt bakarí / Baker needed for a new exciting bakery
Fyrsta bakaríið opnar í Vík - Símstöðin bakarí. Við leitum að hæfileikaríkum, drífandi og áreiðanlegum bakara. Spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að hjálpa til við að móta upphaf og stefnu bakarísins. Vík í Mýrdal er lítið en lifandi þorp tæpa 3 tíma keyrslu frá Reykjavík, umkringt náttúruperlum og þar sem öll nauðsynleg þjónusta er í göngufæri.
/
The first bakery opens in Vík - Símstöðin bakery. We are looking for a talented, driven and reliable baker. Exciting opportunity for the right idnividual to help develop the vision and future of the bakery. Vík is a small but lively village in less than 3 hour driving distance from Reykjavík, surrounded by breathtaking nature and with all basic services within walking distance.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bakstur á brauði, bakkelsi og öðrum vörum samkvæmt uppskriftum og gæðastöðlum.
- Undirbúningur hráefna og deiga.
- Eftirlit með gæðum, ferskleika og framsetningu vara.
- Þátttaka í þróun nýrra vara og uppskrifta.
- Skipulagning framleiðslu til að tryggja nægilegt framboð.
- Viðhald hreinlætis í vinnuaðstöðu og meðhöndlun búnaðar.
- Fylgja reglum um matvælaöryggi og vinnuvernd.
- Samvinna við aðra starfsmenn til að tryggja jákvætt vinnuumhverfi, góða þjónustu og skilvirkan rekstur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bakaraiðn eða sambærileg menntun.
- Reynsla af bakstri í bakaríi eða matvælaframleiðslu.
- Góð þekking á gerdeigi, súrdeigi, brauðum og bakkelsi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Vandvirkni og rík gæðavitund.
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
- Hæfni til að vinna undir álagi og halda góðum vinnuhraða.
- Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðmót.
- Þekking á hreinlætis- og matvælaöryggisreglum.
- Vilji til að læra, þróa nýjar vörur og taka þátt í uppbyggingu bakarísins.
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
- Enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun og árangurstengdar greiðslur ef rekstur gengur vel.
- Herbergi til leigu í starfsmannahúsi eða aðstoð við að finna hentugt húsnæði, ásamt niðurgreiddri leigu.
- Raunverulegt tækifæri til að móta nýtt bakarí frá grunni.
- Sjálfstæði í starfi og mikil áhrif á vöruþróun og gæðastefnu.
- Tækifæri til starfsþróunar samhliða vexti fyrirtækisins.
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 17, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
Bakaraiðn
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

