Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Auðlindasérfræðingur

Rannsóknar og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar leitar að sérfræðingi til liðs við öflugan hóp sem hefur það hlutverk að hafa eftirlit með og stýra nýtingu jarðhitaauðlinda Orkuveitunnar.

Við leitum að manneskju sem sýnir frumkvæði, brennur fyrir ábyrgri orkunýtingu og hefur hæfleika til að vinna í þverfaglegum teymum.

Jarðhitinn er grunnur að þeim lífsgæðum sem við búum við í dag. Orkuveitan er stærsta jarðhitafyrirtæki landsins með bæði há- og lághitaauðlindir í daglegum rekstri. Auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar eru leiðandi á sínu fagsviði og stýra þessum mikilvægu auðlindum í góðu samstarfi við dótturfélögin Veitur, Orku náttúrunnar og Carbfix.

Við leitum að framsýnni manneskju sem sýnir frumkvæði og brennur fyrir ábyrgri orkunýtingu. Í starfinu gefst tækifæri til að taka þátt í þverfaglegu starfi innan Orkuveitunnar og dótturfélaga og stuðla áfram að ábyrgri nýtingu á gulli Íslendinga, jarðhitanum. Starfið krefst getu til að vinna vel í teymi, skipulagshæfni, að geta unnið sjálfstætt, sýna frumkvæði og brennandi áhuga á framþróun ásamt góðri hæfni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti.

Helstu viðfangsefni:

  • Að veita ráðgjöf við nýtingu jarðhitaauðlinda Orkuveitunnar
  • Að sinna gagnagreiningu og úrvinnslu
  • Gerð líkana af jarðhitasvæðum
  • Auðlindaeftirlit

Við leitum að sérfræðing sem býr yfir:

  • Reynslu af uppbyggingu og rekstri líkana
  • Reynslu af gagnavinnslu og gagnagreiningu
  • Þekkingu á jarðhitakerfum og jarðhitanýtingu
  • Reynslu af auðlindarannsóknum/-stýringu er kostur
  • Forritunarkunnátta er kostur
  • Háskólaprófi í raunvísindum, verk- eða tæknifræði

Ef þú vilt taka virkan þátt í ábyrgri auðlindanýtingu og framþróun í jarðhita, býrð yfir framúrskarandi samskiptafærni og leiðtogahæfni, þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið.

Rannsóknar- og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar er öflugt og samhent teymi sem horfir til langs tíma í starfsemi Orkuveitunnar í heild. Teymið tryggir, verndar og treystir á ábyrga og sporlétta nýtingu auðlinda okkar á grunni umfangsmikils rannsóknar- og nýsköpunarstarfs. Sviðið ber m.a. ábyrgð á vöktun og stýringu auðlindanýtingar hjá Veitum og Orku náttúrunnar, að afla nýrra orkukosta og neysluvatnsauðlinda og tekur þátt í alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum og rannsóknasamstarfi. Áhersla er nú á að afla aukinnar grænnar orku úr jarðhita bæði til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni með það að markmiði að viðhalda þeim grunni lífsgæða sem við þekkjum í dag.

Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum, Orku náttúrunnar, Veitum, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Hvernig vinnustaður er Orkuveitan? (kynningarmyndband)

Við tökum jafnréttið alvarlega og viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 22.maí 2026

Nánari upplýsingar veitir Hera Grímsdóttir, framkvæmdarstýra Rannsóknar og nýsköpunarsviðs Orkuveitunnar, í netfanginu [email protected]

Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur22. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar