Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Atferlisfræðingur óskast í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli óskar eftir atferlisfræðingi eða sérkennara í 100% starf

Í Hörðuvallaskóla eru um 515 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 100 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans.

Atferlisfræðingur vinnur í nánu samstarfi með nemendum, foreldrum, kennurum og öðru fagfólki sem kemur að málefnum nemenda. Atferlisfræðingur heldur utan um og ber ábyrgð á einstaklingsáætlunum sinna nemenda og hefur yfirsýn á sínum málum og hversu mikinn stuðning þarf að setja í hvert mál. Í starfi atferlisfræðings er nauðsynlegt að styðja við jákvæða og viðeigandi hegðun, auka virkni og vellíðan nemenda og styðja við öruggt og árangursríkt skóla umhverfi.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Atferlisgreining og ráðgjöf til nemenda, foreldra og fagfólks.
  • Ábyrgð á hegðunarmótandi stuðningsáætlunum og markmiðasetningu fyrir nemendur þegar óskað er eftir atferlisráðgjöf og stýrir aðgerðum í kjölfarið.
  • Handleiðir starfsfólk eftir þörfum og veitir eftirfylgni.
  • Vinnur með nemendum, foreldrum, kennurum og öðru fagfólki.
  • Fundar reglulega með kennurum, foreldrum og öðru fagfólki.
  • Ber ábyrgð á að halda öllum vel upplýstum í hverju teymi eða hverju máli.
  • Situr í viðeigandi teymum vegna mála nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hagnýt atferlisgreining, M.Sc.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar.
  • Hæfni til að takast á við nýjar og fjölbreyttar aðstæður.
  • Sveigjanleiki, lausnamiðun og skilvirkni.
  • Reynsla af vinnu með börnum er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Auglýsing birt5. desember 2025
Umsóknarfrestur5. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar