
Krónan
Verslanir Krónunnar eru í dag 26 talsins auk Snjallverslun. 19 á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Akranesi, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.
Á hverjum degi – allan ársins hring keppumst við, starfsfólk Krónunnar, við að koma réttu vöruúrvali til þín á eins ódýran hátt og mögulegt er. Þrátt fyrir lágt vöruverð gefum við engan afslátt af ferskleikanum.

Afgreiðslustjóri - Krónan Lindir
Krónan leitar að afgreiðslustjóra sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu og upplifun viðskiptavina. Afgreiðslustjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri afgreiðslusvæðis, þar með talið afgreiðslu, sjálfsafgreiðslu, uppgjöri kassa, þjónustuupplifun viðskiptavina og eftirliti með öryggi og verklagi.
Um fullt starf er að ræða þar sem vinnutíminn er 10-19 aðra vikuna og 13-21:15 hina vikuna og þriðja hver helgi. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla
- Umsjón með sjálfsafgreiðslusvæði og afgreiðslukössum
- Eftirlit með frávikum á afgreiðslusvæði
- Samvinna við eftirlitsdeild, Stafræna þróun og aðra lykilaðila
- Gæði á upplifun viðskipavina við afgreiðslusvæði
- Frágangur á afgreiðslusvæði
- Uppgjör afgreiðslukassa
- Verðmerkingar á kassasvæði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og ábyrgð í starfi
- Færni til að læra á allar tæknilausnir á afgreiðslusvæði
- Reynsla úr þjónustustarfi er kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
- Afsláttarkjör hjá Krónunni, N1, ELKO og Lyfju
Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarlind 2, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Starfsfólk í ísbúð og booztbar - Akureyri
Ísbúðin Akureyri

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Hlutastarf í Gryfjunni
Gryfjan

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Reykjanesbær - tímavinna
Vínbúðin