
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)
Frístundamiðstöðinni Brúnni tilheyra frístundaheimili og félagsmiðstöðvar fyrir börn á aldrinum 6-9 (frístundaheimili) og 10-16 (félagsmiðstöðvar) í Árbæ, Grafarvogi, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.
Aðstoðarforstöðumaður – frístundaheimilið Regnbogaland - afleysing í 1 ár
Frístundamiðstöðin Brúin og frístundaheimilið Regnbogaland óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið starfsins er að veita 6 – 9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.Frístundaheimilið Regnbogaland er staðsett við Logafold 1, 112 Reykjavík.Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegri starfsemi og faglegu innra starfi í samvinnu við forstöðumann.
- Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
- Góð færni í samskiptum.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðlakunnátta.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Logafold 1, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Frístundaráðgjafar / leiðbeinendur Hofið
Kringlumýri frístundamiðstöð

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð

Frístundaheimili - stuðningsfulltrúi og frístundaleiðbeinandi
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í tímabundið starf í leikskólann Núp
Núpur

Leiðbeinandi í skilastöðu
Núpur

Skemmtileg hlutastörf í boði í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg

Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja
Kringlumýri frístundamiðstöð

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju
Kringlumýri frístundamiðstöð