

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Setbergsskóli
Setbergsskóli óskar eftir að ráða aðstoðardeildarstjóra í tómstundamiðstöð skólans.
Í tómstundamiðstöðinni er starfsemi frístundaheimilis fyrir 6-9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára.
Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og ábyrgð ásamt deildarstjóra með starfsemi Tómstundamiðstöðvar
- Leiðbeinir starfsmönnum frístundaheimilisins
- Skipulagning og framkvæmd verkefna og viðburða
- Heldur utan um og skipuleggur dagsskipulag frístundaheimilisins ásamt deildarstjóra
- Samskipti og samstarf við samstarfsaðila og forráðamenn
- Starfar með nemendum með sértækan vanda
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu aðstoðardeildarstjóra tómstundamiðstöðvar
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólapróf (B.A) á sviði tómstundafræða, uppeldis- og menntunarfræða eða annað háskólanám (B.A) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Þekkingu á að vinna með hópastarf
- Reynsla af þverfaglegu samstarfi
- Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi. Almenn tölvukunnátta
- Áhugi á málefnum barna og forvörnum
- Samskipta og samstarfshæfni
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið [email protected].
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2025.
Ráðið er í starfið frá og með 1. janúar 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakavottorð.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska




















