A4
A4
A4

50% starf - A4 Kringlan

Verslun A4 Kringlan óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa á okkar góða vinnustað. Einstaklingurinn þarf að vera jákvæður, með góða þjónustulund sem og góða samskiptahæfni.
Unnið er alla virka daga en vinnutími breytist milli vikna. Aðra vikuna er unnið frá kl. 10:00 – 14:00 og hina vikuna 14:00 – 18:30.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára eða eldri

Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Anna í síma 580-0050.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt22. janúar 2026
Umsóknarfrestur29. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kringlan 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar