Avians
Avians
Avians

Viltu þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?

Avians leitar að öflugum einstaklingi til að sinna stöðu sérfræðings í öryggismálum flugstjórnarmiðstöðvar og vill taka þátt í að byggja upp og viðhalda öryggismenningu sem tryggir örugga þjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu.

Um er að ræða starf sem unnið er í líflegu og spennandi vinnuumhverfi á skrifstofu flugstjórnarmiðstöðvarinnar þar sem hafa þarf samskipti við ýmsa aðila og leiða saman mismunandi sjónarmið og skoðanir.

Hjá okkur starfar þú í lifandi og alþjóðlegu umhverfi, þar sem öryggi, samvinna og tækni eru lykilatriði. Við leggjum áherslu á fagmennsku, frumkvæði og sjálfstæði og sömuleiðis á sterka liðsheild og góð samskipti.

Hjá Avians verður þú hluti af öflugu teymi þar sem fjölbreytt og krefjandi verkefni kalla á skipulag, ábyrgð og hæfni til að vinna undir álagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og umsjón öryggismata vegna öryggistengdra breytinga kerfum og verklagi sem notað er við veitingu flugleiðsöguþjónustu.
  • Eftirlit með að öryggiskröfur vegna breytinga séu uppfylltar.
  • Þáttaka í rýni á öryggis- og gæðaframmistöðu deildarinnar.
  • Samskipti við hagaðila og upplýsingamiðlun um öryggis- og gæðaframmistöðu deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur viðeigandi háskólamenntun eða sérhæfða menntun tengda öryggismálum og eða flugi.
  • Hefur þekkingu og reynslu á öryggis- og gæðastjórnun.
  • Reynsla af undirbúningi og stýringu öryggismata æskileg.
  • Er úrræðagóð/ur og sjálfstæð/ur í vinnubrögðum.
  • Á auðvelt með að stýra fundum, vinna í hópi og hefur góða samskiptahæfileika.
  • Hefur góða kunnáttu á bæði íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Professions
Job Tags