
Norðurorka hf.
Norðurorka hf. rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Meginhlutverk fyrirtækisins er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfis raforku og rekstri fráveitu.
Norðurorka hf. er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Gæðastjóri
Norðurorka leitar að öflugum og skipulögðum gæðastjóra til að leiða og þróa gæðastarf fyrirtækisins. Gæðastjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja að verklag, ferlar og skjöl styðji við öruggan og áreiðanlegan rekstur innviða sem samfélagið treystir á allan ársins hring.
Gæðastjóri heyrir undir skrifstofu forstjóra og ber ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi Norðurorku, sem er vottað samkvæmt ISO 9001, og vinnur náið með stjórnendum, gæðaráði og öðrum hagaðilum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur og þróun gæðakerfisins í samræmi við starfsemi og áherslur Norðurorku
- Tryggja að gæðakerfið uppfylli kröfur ISO 9001, laga, reglugerða og annarra opinberra krafna
- Umsjón með innri og ytri úttektum
- Ábyrgð og umsjón með þjálfun og fræðslu starfsfólks tengt gæðamálum
- Ábyrgð og utanumhald gæðaráðsfunda ásamt eftirfylgni með verkefnum ráðsins
- Móttaka og greining frávika ásamt eftirfylgni umbóta
- Þátttaka í teymi um gæða-, umhverfis- og öryggismál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af gæðastjórnun, ferlastýringu eða sambærilegu starfi
- Þekking á ISO 9001 gæðastaðli
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Mjög góð samskiptahæfni
- Góð greiningarhæfni, skipulag og nákvæm vinnubrögð
- Góð skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Geta til að tileinka sér nýja færni og miðla henni til annarra
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsueflingarstyrkur
- Símtækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Advertisement published1. April 2026
Application deadline20. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Rangárvellir 4, 603 Akureyri
Type of work
Skills
Risk analysisReliabilityProfessionalismAnalytical skillsDesigning proceduresImplementing proceduresPlanningQuality tracking systems
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)




