
Reykjavík - Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara
Kjarnahlutverk skrifstofu borgarstjóra og borgarritara felst í þjónustu við embætti borgarstjóra og borgarritara auk þess sem hún hefur yfirumsjón með miðlægri stoðþjónustu og samhæfingu innan stjórnsýslunnar.

Viðburðarfulltrúi
Auglýst er til umsóknar starf viðburðarfulltrúa á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Viðburðafulltrúi hefur umsjón með opinberum móttökum í Ráðhúsi og Höfða fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara ásamt því að sjá um móttökur og aðra viðburði skrifstofunnar.
Skrifstofan þjónustar embætti borgarstjóra og borgarritara, undirbýr samræmda stefnumörkun Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á samhæfðri stefnumörkun í samskipta- og upplýsingamálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótun og gerð verklags varðandi móttökur og aðra opinbera viðburði skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
- Tengiliður vegna viðburða í Ráðhúsi
- Þátttaka í stefnumótun varðandi notkun á Höfða
- Innleiðing og eftirfylgni á verklagi varðandi móttökur og aðra viðburði á vegum skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
- Ábyrgð á undirbúningi, mönnun viðburða og framkvæmd móttaka á vegum Reykjavíkurborgar
- Heldur utan um sýningar og menningarviðburði í Höfða í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
- Er til ráðgjafar varðandi viðburði, móttökur og gestaheimsóknir á sviðum borgarinnar
- Samþykkt reikninga vegna móttaka, viðburða, gjafakaupa og fl.
- Situr í Viðburðastjórn Ráðhúss Reykjavíkur
- Þátttaka í samstarfi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
- Önnur verkefni fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara samkvæmt ákvörðun yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á siðareglum og móttöku opinberra gesta (protocol) æskileg
- Reynsla af viðburðastjórnun æskileg
- Reynsla af sambærilegum störfum á vegum hins opinbera eða hjá stærri fyrirtækjum/stofnunum æskileg
- Fagmennska, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi skilyrði
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og framkomu
- Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta C1 skv. evrópska tungumálarammanum
Advertisement published6. August 2026
Application deadline20. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Móttökuritari - Röntgen Orkuhúsinu
Röntgen Orkuhúsinu

Þjónustufulltrúi í verslun
Fastus

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Veltir

Þjónustufulltrúi - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Starfsfólk í íþrótta- og samfélagsmiðstöðina Heiðarborg
Hvalfjarðarsveit

Leitum að framúrskarandi móttöku- og þjónustufulltrúa hjá Hjartavernd
Hjartavernd

Front Desk Agent – Full-Time, Long-Term Position
Hótel Vík í Myrdal

Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði
Skatturinn

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hamraborg
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Rekstrar- og þjónustuleiðtogi
Eignaleigan

Markaðs- og efnissérfræðingur
Humble Software ehf.