
Avians
Avians veitir flugleiðsöguþjónustu á íslensku flugstjórnarsvæðinu. Við tengjum heimsálfur á Norður-Atlantshafinu og brúum bil fólks og menningarheima á hagkvæman, framsýnan og öruggan hátt. Við leggjum áherslu á framúrskarandi flugleiðsögu á alþjóðlegan mælikvarða. Við fylgjumst jafnframt vel með tækifærum og tækniþróun og notum nýjustu tækni til að auka og bæta þjónustu.
Við viljum að starfsfólk okkar sé ánægt í starfi og að við séum eftirsóttur vinnustaður. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar fái viðeigandi þjálfun til að sinna starfi sínu sem og tækifæri til að þróast í starfi.

Við leitum að hermaflugmönnum í þjálfunardeild Avians
Um er að ræða starf í þjálfunardeild Avians. Hermaflugmenn eru hluti af þjálfunarteymi sem hefur umsjón með ný- og síþjálfun fyrir þá sem starfa innan flugleiðsögu.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem sjálfstæði og samskiptahæfileikar fá að njóta sín.
Við leitum eftir einstaklingum í tímabundnar stöður frá ágúst 2026 til loka maí 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra framvindu ATC/ATS hermaæfinga
- Leika hlutverk flugmanna og ATS aðila
- Setja upp æfingar í flugþjálfa og lagfæra þær
- Prófa virkni æfinga og hugbúnaðar
- Sinna þjálfun, kennslu og öðrum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvufærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla sem tengist flugi og orðanotkun
- Reynsla af kennslu er kostur
Advertisement published19. May 2026
Application deadline7. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (1)
