Avians
Avians
Avians

Ertu sérfræðingur í að halda utan um vaktir og skipulag?

Við leitum að öflugum og skipulögðum sérfræðingi til liðs við skrifstofu flugstjórnarmiðstöðvar þar sem þú gegnir lykilhlutverki í daglegu skipulagi og mönnun vakta flugumferðarstjóra og fluggagnafræðinga.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem engir tveir dagar eru eins. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa gaman af skipulagi, hraða og mannlegum samskiptum og vilja vinna í umhverfi þar sem yfirsýn, lausnamiðuð hugsun og jákvæðni skipta máli.

Í starfinu sinnir þú meðal annars vaktaskipulagi, breytingum á vöktum og daglegum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur. Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem nær að halda ró og yfirsýn í kraftmiklu starfsumhverfi og hefur ánægju af því að láta hlutina ganga upp.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með útgáfu vaktaskrár starfsfólks flugstjórnarmiðstöðvar
  • Almenn skjalavinnsla, útgáfa og dreifing skjala
  • Þátttaka í verkefnahópum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun er kostur
  • Reynsla af vaktaskipulagi er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
  • Þekking og reynsla á Word og Excel
  • Góð samskiptafærni
Advertisement published19. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags