
Hagvangur
Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 8 sérfræðingar við ráðningar og stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og hefur þjónustað hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf og margt fleira.
Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breitt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af. Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins.

Verslunarstjóri
Rótgróin sérvöruverslun leitar að metnaðarfullum verslunarstjóra til að leiða daglegan rekstur verslunar á höfuðborgarsvæðinu. Verslunarstjóri ber ábyrgð á starfsfólki, rekstri og afkomu verslunar og vinnur náið með framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri verslunar og afkomu
- Ábyrgð á starfsmannamálum og uppbyggingu jákvæðs vinnustaðar
- Innleiðing og eftirfylgni með verklagi og þjónustustöðlum fyrirtækisins
- Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini
- Ábyrgð á vöruframsetningu og útliti verslunar
- Eftirfylgni með rekstri, uppgjöri og skýrslugerð
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstjórnun og starfsmannahaldi
- Góð kunnátta og reynsla af Microsoft Office
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og geta til að vinna undir álagi
- Góðir skipulagshæfileikar
- Metnaður og drifkraftur til að ná árangri
- Aðlögunarhæfni og lausnamiðuð hugsun
Advertisement published13. July 2026
Application deadline23. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Afgreiðsla og ráðgjöf
Lyfjaver

Er AIR Smáralind að leita að þér?
S4S - AIR

Starfsmaður í grænmetisdeild - Krónan Vestmannaeyjar
Krónan

Fullnægjandi hlutastarf hjá Blush Reykjavík/Akureyri
Blush

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Lagerstarfsmaður
Kappahl

Starfsmaður í kjötborð & eldhús
Melabúðin

Öflugir vaktstjórar á höfuðborgarsvæðinu - Krónan
Krónan

Sölufulltrúi í verslanir BIOEFFECT
BIOEFFECT hf.

Verslunarstjóri Huppu Hafnarfirði
Ísbúð Huppu

Sölufulltrúar óskast í fyrirhugaða verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR