
Verkefnastjóri hjá fjárfestingafélagi - Hentar nemum / Project Manager
Ertu skipulögð/skipulagður, vinnusöm/-samur og langar að kynnast heiminum á bak við fjárfestingar og frumkvöðlastarf? Þá gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig!
Lítið fjárfestingafélag í Reykjavík leitar að verkefnastjóra til að styðja framkvæmdastjóra við daglegan rekstur og fjölbreytt verkefni. Þetta er hagnýtt og krefjandi hlutverk þar sem þú færð innsýn í viðskiptaþróun, fjárfestingar og samskipti við frumkvöðla og fyrirtæki á öllum stigum.
Hvað felst í starfinu: Skipulag, tímastjórnun og eftirfylgni verkefna. Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og frumkvöðla. Almenn aðstoð við rekstur — engir tveir dagar eru eins.
Hvað við leitum að: Einstaklingi með frumkvæði sem getur unnið sjálfstætt, er nákvæmur og lipur í samskiptum, og getur haldið mörgum boltum á lofti. Reynsla skiptir minna máli en viðhorf og vinnusemi.
Hvað þú færð: Innsýn í fjárfestingar- og frumkvöðlaheim Íslands. Tengslanet sem tekur langan tíma að byggja upp á eigin spýtur. Sveigjanlega vinnu sem hentar vel samhliða námi, allt eftir samkomulagi.
Skipulag og tímastjórnun fyrir framkvæmdastjóra. Verkefnastjórnun og eftirfylgni. Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og frumkvöðla. Undirbúningur funda og minnisblöð. Almenn aðstoð við daglegan rekstur félagsins.
Engar sérstakar menntunarkröfur, staðan hentar vel nemum í háskólanámi, t.d. í viðskiptafræði, lögfræði, stjórnmálafræði eða skyldum greinum. Skipulagshæfni og nákvæmni. Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Góð tölvukunnátta. Lipurð í samskiptum á íslensku og ensku
Sveigjanlegur vinnutími sem hentar vel samhliða námi. Hægt að vinna heima eftir samkomulagi. Einstakt tækifæri til að byggja upp tengslanet í viðskipta- og fjárfestingaheiminum. Reynsla og innsýn.
Icelandic
English










