MýSköpun
MýSköpun
MýSköpun

Verkefnastjóri byggingarframkvæmda og tæknimála / Project Manager Construction & Technical Ops

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til að leiða og samhæfa byggingarframkvæmdir og tæknileg málefni við uppbyggingu hátækni framleiðslustöðvar á Norðurlandi. Starfið er lykilhlutverk í metnaðarfullu verkefni þar sem byggingarframkvæmdir, tæknileg hönnun, rekstrarundirbúningur og samvinna við fjölbreytta hagsmunaaðila mætast.

Þú vinnur náið með stjórnendum, verkfræðingum, hönnuðum, verktökum og birgjum og berð ábyrgð á að tryggja að verkefnið skili sér á réttum tíma, innan fjárhags og í samræmi við tæknilegar kröfur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með og verkefnastjórnun byggingarframkvæmda og tengdra tæknimála

  • Áætlanagerð, verk-, tíma- og kostnaðaráætlanir og eftirfylgni

  • Samhæfing hönnunar, tæknilegra lausna og framkvæmda

  • Samskipti og samvinna við verkfræðistofur, hönnuði, verktaka og birgja

  • Rýni verkgagna og þátttaka í mótun tæknilegra úrlausna

  • Umsjón með innkaupum og framvindu verkefna

  • Uppfærsla fjárhagsáætlunar í samræmi við framvindu verkefna og skýrslugjöf

  • Viðhald verkefnaskjala og fylgni við reglur, staðla og leyfi

  • Stuðningur við rekstrar- og gangsetningarundirbúning stöðvarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði, rafmagnstæknifræði, iðnaðarverkfræði eða verkefnastjórnun. Einnig kemur til greina einstaklingur með meistararéttindi og mikla starfsreynslu.

  • Að lágmarki 5 ára reynsla af verkefnastjórnun, umsjón byggingarframkvæmda, tæknimálum eða sambærilegu

  • Þekking á DMM eða sambærilegu viðhaldskerfi er kostur

  • Reynsla af samstarfi við utanaðkomandi aðila og stjórnun flókinna verkefna

  • Sterk skipulagsfærni, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Gott vald á ensku er skilyrði; íslenska er kostur

  • Starfið er á Norðausturlandi og mun framtíðar starfsstöð vera í nýju hátækni-framleiðsluhúsnæði félagsins á Þeistareykjum

Við bjóðum

  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu stórs og metnaðarfulls hátækniverkefnis

  • Mikla ábyrgð og raunveruleg áhrif á framvindu og niðurstöðu verkefnis

  • Samkeppnishæf laun í samræmi við reynslu og hæfni

  • Starf í metnaðarfullu, sveigjanlegu og lausnamiðuðu teymi

Advertisement published5. February 2026
Application deadline28. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Mývatn
Húsavík
Þeistareykjavirkjun
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags