
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Söluráðgjafi varahluta
Fastus leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi verkefni á tæknideild fyrirtækisins. Starfið felur í sér sölu, ráðgjöf og afgreiðslu varahluta, gerð verðútreikninga og frágang varahluta, auk pantana og innkaupa. Í starfinu þarf einnig að sinna eftirfylgni með ábyrgðarviðgerðum og virk samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk.
Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.
Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, ráðgjöf og afgreiðsla varahluta
- Verðútreikningar og frágangur á varahlutum
- Pantanir og innkaup á varahlutum
- Eftirfylgni með ábyrgðarviðgerðum
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk
- Almenn tölvupóstsamskipti
- Símsvörun
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
- Gott frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna undir álagi
- Almenn þekking á landbúnaðar- og vinnuvélum telst mikill kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Advertisement published5. February 2026
Application deadline19. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
Customer checkoutTech-savvyTroubleshootingHuman relationsPhone communicationEmail communicationCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Skapandi sölustarf
Tinna ehf.

Verslunarstjóri
Rafkaup

Purchasing Processor / Sérfræðingur í innkaupum
Alvotech hf

Prentari - framleiðsla umbúða
Vörumerking ehf

Ert þú týpan sem elskar að leysa tæknileg vandamál?
Raförninn

Sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
BAUHAUS slhf.

Söludrifinn viðskiptastjóri
Straumur

Viltu vinna með okkur í sumar?
Set ehf. |

Afgreiðsla í verslun - Hlutastarf
Vistvera

Ráðgjafi á Ísafirði
Sjóvá

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Starfsmaður í viðhaldsdeild
Center Hotels