
Center Hotels
Center Hotels er fjölskyldurekin hótelkeðja til yfir 20 ára.
Hótelin í Center Hotels keðjunni eru 8 talsins, öll staðsett í miðborg Reykjavíkur og bjóða upp á góða þjónustu, notaleg herbergi, veitingastaði, bari, heilsulindir, funda- og veislusali. Hótelin eru:
- Grandi by Center Hotels
- Miðgarður by Center Hotels
- Þingholt by Center Hotels
- Center Hotels Laugavegur
- Center Hotels Arnarhvoll
- Center Hotels Plaza
- Center Hotels Klöpp
- Center Hotels Skjaldbreið
Hjá Center Hotels starfa um 300 manns sem allt er hæfileikafólk á sínu sviði. Starfsfólk okkar býr yfir mismunandi menntun og reynslu en á það sameiginlegt að leggja metnað sinn í að sinna starfi sínu vel og leggja sitt af mörkum við að sinna gestum hótelanna eins vel og hægt er.
Við leggjum metnað okkar í að styrkja og stuðla að því að starfsfólki okkar líði vel í starfi og að þeim bjóðist sá möguleiki að vaxa og dafna innan starfsins og hótelkeðjunnar. Við bjóðum því upp á úrval námskeiða í okkar eigin Center Hotels skóla þar sem boðið er upp á ýmiss konar fræðslu, kennslu og öflugt íslenskunám.
Jafnrétti á vinnustað er okkur hjartans mál og höfum við lagt mikla áherslu á að hafa jafnræði og jafnrétti að leiðarljósi. Við vorum fyrst allra ferðaþjónustufyrirtækja að fá jafnlaunavottun BSI árið 2018 og hlutum við viðurkennningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020 og 2021.
Nánari upplýsingar um hótelin okkar er að finna á www.centerhotels.is

Starfsmaður í viðhaldsdeild
Við leitum að öflugum aðila til liðs við viðhaldsdeild Center Hotels.
Markmið starfsins er að þjónusta hótel og samstarfsfólk í viðhaldi og umbótum fasteigna sem tilheyra Center Hotels. Að hafa markmið og gildi Center Hotels ávallt að leiðarljósi og vinna að því að ná settum markmiðum í góðri samvinnu með samstarfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt viðhald, viðgerðir og úrbætur á eignum hótelanna.
- Tækniþjónusta.
- Þjónusta hótelin og samstarfsfólk samkvæmt verkefnum sem berast í gegnum beiðnakerfi.
- Viðhaldsþrif og tiltekt.
- Smíðavinna þegar þess er þörf.
- Almennt gæðaeftirlit.
- Sjá til þess að vinnuaðstaða sé ávallt hrein og skipulögð.
- Sendiferðir.
- Auk annarra tilfallandi starfa sem yfirmaður felur starfsmanni og falla undir eðlilega starfsemi hótela á vegum fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð enskukunnátta er skilyrði.
- Íslenskukunnátta.
- Góð og jákvæð samskipti.
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Rík þjónustulund.
- Handlægni.
- Bílpróf er skilyrði.
Advertisement published5. February 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Þverholt 14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PositivityPunctualCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Prentari - framleiðsla umbúða
Vörumerking ehf

Viltu vinna með okkur í sumar?
Set ehf. |

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Skemmtileg störf í Garðyrkjudeild
Þjónustustöð Mosfellsbæjar

Flokkstjóri í garðyrkjudeild
Þjónustustöð Mosfellsbæjar

Vélamaður í þjónustumiðstöð
Garðabær

Starf við hönnun og smíði stoðtækja
Stoð

Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Starfsfólk í verksmiðju
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Starfsmaður í einingaverksmiðju
Íslandshús ehf.

Country Security Operations Manager
atNorth