
HD Iðn- og tækniþjónusta
HD ehf. er eitt öflugasta iðn- og tækni-þjónustufyrirtækið á Íslandi og þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi. HD er framsækið og vel rekið fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum viðhaldi á vélbúnaði, stálsmíði og tækniþjónustu.
Hjá HD starfa um 200 manns á 6 starfs-stöðvum fyrirtækisins í Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Straumsvík, Grundartanga og Eskifirði. Fyrirtækið er vel búið tækjum og aðstöðu sem tryggir hámarks fagmennsku og skilvirkni. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu sem stuðlar að auknu öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni í þeirra rekstri.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa gott starfsumhverfi þar sem starfsmenn fá tækifæri til að þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu. Við styðjum framtíðar fagmenn með nemastyrkjum og erum opin fyrir hæfu, áhugasömu og metnaðarfullu fólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Við veitum starfsmönnum okkar tækifæri til að þróast í krefjandi og spennandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vinna vel í teymi og hafa metnað til að skila framúrskarandi starfi. Starfsmenn HD njóta meðal annars líkamsræktarstyrks og heits hádegismatar.
Gildin okkar – öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – eru okkur að leiðarljósi í öllum daglegum störfum.

Vélvirki á Grundartanga
Við leitum að einstaklingum með fagmenntun eða starfsreynslu tengdri vélaviðgerðum á starfsstöð fyrirtækisins á Grundartanga.
Lögð er áhersla á að ráða hæft, áhugasamt og vel þjálfað fólk sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi.
Það er markmið HD að einstaklingar sem sinna starfinu af áhuga og nýta hæfileika sína til fulls eigi raunverulega möguleika á því að byggja sig upp í starfi innan fyrirtækisins.
Helstu verkefni HD:
- Heildarlausnir fyrir iðnað
- Vélaviðgerðir og vélsmíði
- Þjónusta og sala á búnaði til hitaveitna og virkjana
- Vöruhönnun, -þróun og tæknileg aðstoð
- Stálsmíði úr svörtu / ryðfríu stáli og áli
- Rennismíði í sérsmíði og fjöldaframleiðslu
- Leiðandi í ástandsgreiningu vélbúnaðar
Menntunar og hæfniskröfur:
- Sveinsbréf í vélvirkjun eða vélfræði
- Reynslumiklir einstaklingar á sviðið vélaviðgerða koma til greina
- Hæfni í mannlegum samskiptum og færni til að vinna vel í teymi
- Öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Metnaður til að skila góðu starfi
- Góð Íslensku kunnátta skilyrði
Boðið er upp á ferðir til og frá vinnustað frá Akranesi, Borgarnesi og Höfuðborgarsvæðinu
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir: Páll Indriði Pálsson. [email protected]
Advertisement published28. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Klafastaðavegur 12, 301 Akranes
Type of work
Skills
ProactiveAmbitionPlanningIndustrial mechanics
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Rafvirki
Blikkás ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Starfsmaður í bílarèttingu
Réttverk ehf.

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Vegagerðin

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates