
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Leitum að starfsmanni á vélaverkstæði á Akureyri. Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, eftirlit og þjónustu við ýmiss konar vélar, tæki og búnað.
Styttri ferðir innan Norðursvæðis tilheyra starfinu og því er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni, bæði á verkstæði og úti á starfsstöðvum.
Við hvetjum einstaklinga með góða verklega og tæknilega færni til að sækja um.
Vegagerðin á Norðursvæði nær frá Holtavörðuheiði að Biskupshálsi á Möðrudalsörævum og upp á miðhálendi. Vegagerðin á Norðursvæði rekur sex þjónustustöðvar sem staðsettar eru á Akureyri, Sauðárkróki, Hvammstanga, Húsavík, Þórshöfn og Vopnafirði, ásamt vélaverkstæði á svæðismiðstöð á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við vélar, tæki og búnað á þjónustustöðvum á Norðursvæði.
- Viðhald og eftirlit með bílum, búnaði og tækjum Vegagerðarinnar.
- Uppsetning og viðhald á vegbúnaði og mælitækjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkleg og/eða tæknileg færni sem nýtist í starfi.
- Reynsla af viðhaldi, viðgerðum á vélum ökutækjum eða öðrum tæknilegum búnaði.
- Vélvirki, bifvélavirki eða önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Vinnuvélaréttindi, æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni að vinna í teymi.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Góð öryggisvitund.
- Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi.
Advertisement published9. October 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Rafvirki
Blikkás ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair