

Vaktstjóri þjónustu og upplifunar (e. Service & Experience Manager)
Laugarás Lagoon leitar að jákvæðum, skipulögðum og drífandi vaktstjóra sem hefur ánægju af því að leiða fólk, skapa sterka liðsheild og tryggja framúrskarandi upplifun gesta. Starfið felur í sér yfirumsjón með rekstri á vakt í baðlóni Laugarás Lagoon og á veitingastaðnum Ylju. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í að halda utan um flæði, þjónustu, gæði og öryggi í allri starfseminni á vaktinni. Unnið er samkvæmt 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.
Vaktstjóri er fyrirmynd í þjónustu og leiðtogahlutverki, vinnur náið með starfsfólki í framlínu og tryggir að andrúmsloft staðarins einkennist af hlýju, fagmennsku, skipulagi og samheldni.
-
Yfirumsjón með daglegum rekstri á vakt í baðlóni og á veitingastaðnum Ylju
-
Leiða, styðja og hvetja starfsfólk og efla sterka liðsheild
-
Vera fyrirmynd í þjónustu, fagmennsku og jákvæðu leiðtogahlutverki
-
Tryggja framúrskarandi upplifun gesta í öruggu og snyrtilegu umhverfi
-
Hafa yfirsýn yfir flæði gesta og stýra álagstímum af yfirvegun
-
Tryggja eftirfylgni með öryggisferlum og viðbrögðum á vakt
-
Samræma þjónustu og starfsemi milli deilda
-
Taka virkan þátt í ráðningum, móttöku og þjálfun nýs starfsfólks í samstarfi við aðra stjórnendur
-
Koma með hugmyndir að bættri þjónustu og þróun upplifunar
-
Taka virkan þátt í mótun jákvæðrar menningar, skipulags og starfsanda
-
Reynsla af vaktstjórn, yfirumsjón eða stjórnun teyma er kostur
-
Reynsla af veitingarekstri er kostur
-
Reynsla eða þekking á öryggis- og viðbragðsferlum er kostur
-
Tækniþekking og hæfni til að vinna með bókunar-, kassa- og rekstrarkerfi er kostur
-
Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
-
Jákvætt viðhorf og sterk þjónustulund
-
Skipulögð vinnubrögð, leiðtogahæfni og hæfni til að efla liðsheild
-
Rík ábyrgðartilfinning og meðvitund um öryggi gesta og starfsfólks
-
Hæfni til að vinna í hröðu og síbreytilegu starfsumhverfi
-
Lausnamiðuð hugsun, yfirvegun og sveigjanleiki
-
Fagmennska í samskiptum og ákvarðanatöku
-
Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu glænýs vinnustaðar í einstöku umhverfi á Suðurlandi
-
Mikilvægt hlutverk innan fyrirtækisins með raunveruleg áhrif á mótun starfseminnar
-
Líflegt og vaxandi starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
-
Tækifæri til starfsþróunar
- Hádegis- og kvöldverður á vinnutíma
-
Aðgangur að upplifun fyrirtækisins utan vinnutíma
-
Önnur tilfallandi fríðindi
English
Icelandic










