

Launafulltrúi
Laugarás Lagoon leitar að skipulögðum og metnaðarfullum launafulltrúa sem hefur áhuga á mannauðsmálum, launavinnslu og nákvæmum vinnubrögðum. Um er að ræða lykilhlutverk í daglegum rekstri fyrirtækisins þar sem áhersla er lögð á faglega og tímanlega launavinnslu, góð samskipti við starfsfólk og þátttöku í uppbyggingu Laugarás Lagoon sem nýs og spennandi áfangastaðar í hjarta Suðurlands.
-
Ábyrgð á launavinnslu og tengdum ferlum
-
Úrvinnsla launa, yfirvinnu, álags, orlofs og annarra launatengdra þátta
-
Umsjón með tímaskráningu og samræmingu við launakerfi
-
Samskipti við starfsfólk vegna launa, launaseðla og skýringa
-
Samskipti við stéttarfélög, lífeyrissjóði og opinberar stofnanir
-
Umsjón með skráningu starfsmanna og breytinga í launa- og mannauðskerfum
-
Stuðningur við mannauðsmál og önnur tilfallandi skrifstofuverkefni
-
Eftirfylgni með breytingum á kjarasamningum og lagaumhverfi launamála
-
Aðkoma að einföldum bókhaldsverkefnum eftir þörfum, svo sem frágangi gagna og almennri bókhaldsumsjón
-
Menntun sem nýtist í starfi launafulltrúa
-
Reynsla af launavinnslu er skilyrði
-
Grunnþekking í bókhaldi er kostur
-
Góð þekking á íslenskum kjarasamningum og vinnumarkaðsreglum
-
Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
-
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
-
Hæfni til að vinna með trúnaðarupplýsingar af fagmennsku
-
Sveigjanleiki og vilji til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum
-
Lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðhorf
-
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
-
Reynsla af ferðaþjónustu er kostur
-
Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu glænýs vinnustaðar í einstöku umhverfi á Suðurlandi
-
Mikilvægt hlutverk í mótun og þróun innri ferla fyrirtækisins
-
Líflegt og vaxandi starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
-
Tækifæri til starfsþróunar
-
Sveigjanleiki í starfi og vinnutíma
-
Aðgangur að upplifun fyrirtækisins utan vinnutíma
-
Önnur tilfallandi fríðindi
Icelandic
English




