
Laugarás Lagoon
Í sumar bætist ný perla í einstakt landslag uppsveita Árnessýslu. Laugarás Lagoon er nýr baðstaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu brú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum og einstöku útisvæði. Nákvæm dagsetning opnunar verður tilkynnt með vorinu.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon verður veitingastaðurinn Ylja sem Gísli Matthías Auðunsson fer fyrir. Á Ylju munu gestir njóta matreiðslu sem nýtir ferskt sjávarfang, afurðir frá bændum á Suðurlandi, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.

Uppvask / Kitchen porter
(English below)
Viltu vera hluti af samhentu eldhústeymi þar sem gleði, famennska og góð orka ráða ríkjum? Við leitum að drífandi og ábyrgum einstaklingum í uppvask og eldhúsaðstoð á veitingastaðnum Ylju, sem opnar á næstunni við Laugarás Lagoon. Starfið er mikilvægur burðarás í daglegri starfsemi þar sem þú styður við flæði, hreinlæti og jákvæðan starfsanda. Þú vinnur náið með kokkum og starfsfólki eldhússins þar sem allir leggja sitt af mörkum til að halda vinnuumhverfi hreinu og skipulögðu – og stuðla að jákvæðri orku í eldhúsinu. Þitt framlag hefur bein áhrif á liðsheild og gæði þjónustunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þrif og uppvask með áherslu á faglegt verklag og hreinlæti
- Aðstoð við eldhússtörf og undirbúning eftir þörfum
- Tryggja snyrtilegt og öruggt umhverfi í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingum sem...
- Eru jákvæðir, skipulagðir og vinnusamir
- Geta unnið sjálfstætt og innan teymis
- Sýna frumkvæði og tilbúin að læra og vaxa í starfi
- Hafa áhuga á matarmenningu og vellíðan á vinnustað
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á
- Einstakt tækifæri til að taka þátt í nýju og skapandi verkefni undir stjórn Gísla Matts
- Samstarf við kraftmikið og fjölbreytt teymi
- Líflegt starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á matarást, virðingu og gleði
- Möguleika á húsnæði í nágrenni við vinnustað
- Aðgang að þjónustu Laugarás Lagoon
Advertisement published3. September 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills

Required
Location
Skálholtsvegur spenni , 801 Selfoss
Type of work
Skills
Kitchen workDish washingCleaning
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Aðstoð í skólaeldhúsi Húnabyggðar
Húnabyggð

Starfsfólk í eldhús óskast
Sjávargrillið

Þjónusta í mötuneyti
RÚV

Burger cooking genius!
2Guys

Starfsfólk í eldhús og afgreiðslu
YUZU

Aðstoð í eldhúsi/mötuneyti 100% starf framtíðarstarf
Kokkarnir Veisluþjónusta

Full time Cook wanted - Accomodation available!
Ráðagerði Veitingahús

Matreiðslumaður/Chef LiBRARY bisto/bar - Keflavík
LiBRARY bistro/bar

Afgreiðslustarf
Bláa sjoppan og Polo

Starfsmaður í skólamötuneyti
Í-Mat

Aðstoðamaður í eldhúsi - kitchen worker
Fuku Mama