Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Umsjónarmaður fasteigna

Veðurstofa Íslands auglýsir eftir umsjónarmanni fasteigna. Leitað er að vandvirkum, þjónustulunduðum og úrræðagóðum einstaklingi sem hefur góða þekkingu á rekstri og viðhaldi húsnæðis.

Starf umsjónarmanns fasteigna tilheyrir fjármála- og rekstrarsviði Veðurstofu Íslands og gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri stofnunarinnar. Umsjónarmaðurinn ber meðal annars ábyrgð á umsjón fasteigna, lóða og aðbúnaði og starfsaðstöðu starfsfólks og tryggir að húsnæði og innviðir styðji sem best við fjölbreytta og mikilvæga starfsemi Veðurstofunnar.

Húsnæði Veðurstofunnar á höfuðborgarsvæðinu samanstendur af þremur byggingum með um 3600 m². skrifstofurými, kaffistofum, mötuneyti, fjölmörgum fundarrýmum, sérhæfðum tækjarýmum auk 1000 m² verkstæðis. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði og aðstöðu stofnunarinnar þar með talið lóðum, sorphirðu og snjómokstri.
  • Almennt og minniháttar viðhald fasteigna, húsbúnaðar ásamt uppsetningu á starfsaðstöðu.
  • Umsjón með tæknikerfum húsnæðis, svo sem loftræsti-, og rafmagnskerfum auk þátttöku í öryggis- og aðgangsstýringateymi.
  • Samskipti við þjónustuaðila, iðnaðarmenn, verktaka og aðra sem koma að rekstri fasteigna hjá ríkinu.
  • Aðkoma að gerð og eftirfylgni viðhalds- og framkvæmdaáætlunar í samstarfi við fagstjóra reksturs.
  • Aðkoma að gæðamálum, svo sem áhættumati og gerð viðbragðsáætlana vegna húsnæðis.
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði fasteigna og reksturs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf eða tæknimenntun s.s. á sviði byggingartæknifræði er kostur.
  • Farsæl reynsla sem nýtist við rekstur og viðhald fasteigna
  • Rík þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Sjálfstæði, frumkvæði, nákvæmni og vönduð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku og ensku 

    Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Advertisement published21. July 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bústaðavegur 7, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags