
ENERCON Iceland ehf.
ENERCON er eitt af leiðandi vindorkufyrirtækjum heims. Fyrirtækið hefur, frá árinu 1984, sérhæft sig í þróun, framleiðslu, sölu og þjónustu við vindmyllur á landi undir slagorðinu „orka fyrir heiminn“ (e. Energy for The World).

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
Enercon óskar eftir að ráða öfluga rafvirkja til starfa í fyrsta vindmyllugarð félagsins á Íslandi, sem staðsettur verður í Búrfelli/Vaðölduveri. Við leitum að einstaklingum sem geta unnið í mikilli hæð og eru tilbúnir að ferðast töluvert vegna starfa sinna. Þjónustubygging vindmyllugarðsins verður staðsett á Hellu. Um er að ræða einstakt tækifæri til að eiga þátt í uppbyggingu á fyrsta vindorkuveri landsins. Ráðið er í stöðuna frá janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald, skoðun og viðgerðir á raf- og vélhlutum vindmylla
- Bilanagreining og úrbætur (rafmagns- og vélabilanir)
- Íhlutaskipti ásamt viðhaldi á rafkerfum sem og ástandsvöktunarkerfum
- Gerð þjónustuskýrslna og tímaskráninga í samræmi við verklagsreglur
- Yfirsýn yfir innkaup og birgðastöðu varahluta
- Viðhald á þjónustubifreið
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Þekking og reynsla af rafvirkjun og viðhaldi
- Geta til að starfa í mikilli hæð og við breytileg veðurskilyrði
- Góð öryggisvitund
- Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og metnaður
- Almenn ökuréttindi (B-réttindi)
- Góð íslenskunnátta í ræðu og riti
- Grunnþekking í ensku
Advertisement published2. July 2026
Application deadline31. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Vaðölduver - Búrfell
Faxaflatir
Type of work
Skills
Electrician
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Umsjónarmaður fasteigna
Veðurstofa Íslands

Tæknimaður – Fastus Akureyri
Fastus

Rafvirki
Rafbraut ehf

Þjónustudeild Blikksmiðsins hf.
Blikksmiðurinn hf

Vélvirki í tæknideild
Coca-Cola á Íslandi

Öryggisfulltrúi / Rafvirki
atNorth

Kaffivélatæknir - viðgerðir, viðhald og þjónusta
Nespresso á Íslandi

Tæknifólk í hleðsluþjónustu ON
Orka náttúrunnar

Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur
atNorth

Rafvirki
DTE

Assembly Technician
Laki Power

Sölustjóri sérverkefna óskast til Sindra, Kópavogi
SINDRI