Húnabyggð
Húnabyggð

Umsjónarkennari á unglingastigi í Húnaskóla

Um er að ræða stöðu umsjónarkennara á unglingastigi 100% staða frá 1. ágúst 2025. Mögulegar kennslugreinar eru enska, íslenska og samfélagsfræði. Húnaskóli er framsækinn grunnskóli í mótun með 180 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með nemendum á mið- eða unglingastigi og faggreinakennsla. Foreldrasamstarf og önnur fagleg störf innan skólans sem starfsfólk vinnur saman í teymum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur verða að hafa leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla æskileg. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu, samþættingu námsgreina og þemabundin verkefni. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg. 

Farið er eftir Reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla.

 

Advertisement published2. May 2025
Application deadline15. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Húnabraut 2a
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teaching
Professions
Job Tags