
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri
Þjónustufulltrúi starfar í þjónustuveri þar sem hann sinnir móttökustörfum fyrir svið Kópavogs. Megin verkefni felast í móttöku og afgreiðslu, skráningu gagna, skjalavörslu, útsendingu bréfa og símavörslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla, móttaka og símavarsla þjónustuvers.
- Leiðbeiningar og aðstoð við einstaklinga vegna þjónustu Kópavogsbæjar og notkun rafrænna lausna.
- Umsýsla og afgreiðsla á búnaði til starfsfólks, svo sem tölvum, símum og skrifstofuvörum.
- Aðstoð við notendur vegna sérúrræða á mennta- og velferðarsviði.
- Móttaka umsókna og erinda, skráning mála og fylgigagna í One skjalakerfi.
- Skjalavinnsla, frágangur og varðveisla gagna í samræmi við skjalareglur og kröfur Héraðsskjalasafns.
- Undirbúningur funda, frágangur fundargerða og gerð svarbréfa.
- Skráning og umsýsla upplýsinga í upplýsingatæknikerfum bæjarins.
- Uppfærsla og viðhald upplýsinga á vef bæjarins og í þekkingarkerfi þjónustuvers.
- Virk þátttaka í þróun þjónustu, umbótaverkefnum og aukinni sjálfvirknivæðingu.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærilegt menntun
- Að vera í námi á sviði félagsfræða telst kostur
- Góð almenn tölvukunnátta, þar á meðal í MS Office
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð íslensku- og ensku kunnátta áskilin. Þekking á öðrum tungumálum getur verið kostur
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 klukkustunda vinnuvika.
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi í kærumóttöku LRH
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Vaktstjóri á þjónustuborð - helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Þjónustuteymi Orkunnar
Orkan

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Þjónustufulltrúi í talstöðvarþjónustu Pant – sumarstarf
Pant

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Fagkaup óskar eftir vönum bílstjóra með meiraprófsréttindi
Fagkaup ehf

Hafnarverðir / Afgreiðsla í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf

Þjónustufulltrúi / Car Rental Agent
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Þjónustufulltrúi
Efling stéttarfélag