Brimborg
Brimborg
Brimborg

Umsjónarmaður bíla á Akureyri

Við leitum að duglegum einstaklingi í starf umsjónarmanns bíla hjá Brimborg. Umsjónarmaður bíla vinnur þétt með starfsfólki söludeilda. Hann aðstoðar við uppítökur og söluferli notaðra bíla, hefur umsjón með sýningar- og reynsluakstursbílum og fylgir eftir nýjum og notuðum bílum í afhendingarferli ásamt öðrum tilfallandi störfum.

Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum.

Við bjóðum uppá:

  • Lifandi og spennandi starf þar sem þú snertir á mörgum þáttum
  • Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
  • Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
  • Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða söludeildir við uppítökur og söluferli notaðra bíla
  • Leita tilboða í viðgerðir á notuðum bílum
  • Flytja bíla á milli staða
  • Hafa umsjón með sýningar- og reynsluakstursbílum
  • Fylgja eftir nýjum og notuðum bílum í afhendingarferli
  • Aðstoða söludeildir og verkstæði með bílastæði viðskiptavina, færa bíla osfrv.
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi og þekking á bílum sem nýtast í starfi
  • Gilt bílpróf
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar
  • Snyrtimennska og stundvísi
  • Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
  • Færni í notkun upplýsingakerfa: Windows, Dynamics AX/Navision, CRM
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
  • Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
  • Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Advertisement published31. March 2026
Application deadline10. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bíldshöfði 8, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.CRMPathCreated with Sketch.Dynamics NAVPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Microsoft CRMPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.NavisionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags